Skilmálar

Skilmálar vefverslunar:
Vefverslun LYDIA ehf. Kt. 061295-2919. Öll ákvæði skilmálanna hér að neðan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir varnarþingi félagsins, Héraðsdómi Reykjavíkur.

Afgreiðsla pantana:
Pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir að greiðsla hefur borist. Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd ef þess er óskað.

Sendingar:
LYDIA býður upp á heimsendingar, póstbox eða sendingu á næsta pósthús.  Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Vefverslun okkar er beintengd við póststoð Íslandspósts og Dropp. Sendingarkostnaður reiknast miðað við verðskrá þeirra. Afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp gilda um afhendingu vörunnar.
LYDIA ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á því tjóni sem kann að verða í flutningi.

Skilafrestur og endurgreiðsla:
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaup á vefverslun að því tilskildu að varan sé ónotuð, henni skilað í góðu lagi og í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ekki er hægt að skila vöru ef búið er að rjúfa innsigli á pakkningu. Þegar vöru er skilað endurgreiðir LYDIA vörukaup ef ofangreind skilyrði hafa verið uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Við bendum viðskiptavinum á að hafa samband við verslun sem mun afgreiða málið eða með tölvupósti á info@lydia.is. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vöru sem er skipt/skilað. Ef einhverjar spurningar vakna þessu tengdar, hafið þá vinsamlegast samband í ofangreindann tölvupóst.

Verð:
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og LYDIA áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef verð vörunnar er rangt skráð á vefverslun. Öll verð á vefversluninni eru með virðisauka og allir reikningar eru gefnir út með VSK.

Myntbreyta:
Með því að nota vefsíðu okkar samþykkir þú að leyfa þriðja aðila að vinna úr IP-tölu þinni til að ákvarða staðsetningu þína aðeins í þeim tilgangi að breyta gjaldamiðli. Við gerum þetta til þess að valinn gjaldmiðill sé réttur samkvæmt gengi á þeim tíma þegar vafrað er á vefsíðu okkar og veita með því betri þjónustu.

Trúnaður:
LYDIA heitir kaupanda fullum trúnaði varðandi allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhendar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.  Þegar vara er pöntuð í vefverslun LYDIA eru upplýsingar um greiðslukort aðeins vistaðar rétt á meðan viðskiptin fara fram og eru samþykkt í kerfinu. Korta/Rapyd geymir kortaupplýsingarnar í öruggum kerfum sínum, en ekki á greiðslusíðunni sjálfri. Um leið og pöntunin er staðfest og viðskiptavinur fær staðfestingu í hendurnar verður öllum upplýsingum um greiðslukortið eytt samstundis úr kerfinu. Kortaupplýsingarnar eru því alltaf öruggar á meðan öllu ferlinu stendur.

Prints:
Pantanir eru sendar innan 3-5 daga virkra daga.
Eftir það ættu þær að koma innan;
1-4 daga til Bretlands og Evrópu
2-5 daga til N-Ameríku
5-7 daga til Ástralíu og Nýja Sjálands

Aðrir áfangastaðir geta verið breytilegir. Vinsamlegast leyfðu allt að 2 vikum fyrir afhendingu. Þegar pöntunin þín hefur verið send færðu rakningarnúmer sent í tölvupósti.

Ath. Ef heimilisfangið þitt birtist ekki, vinsamlegast hafðu samband við okkur og við munum reyna að finna lausn.

Skemmd/týnd Listaverk
Ef svo ólíklega vildi til að þú fáir skemmt listaverk, vinsamlegast hafðu samband við info@lydia.is innan 48klst með myndum af skemmdunum. Þegar það hefur verið staðfest munum við skipta um útgáfuna, án endurgjalds. Ef við getum ekki skipt út útgáfunni munum við sjá um endurgreiðslu um leið og við fáum skemmda listaverkið til baka og samsvarandi Certificate of Authenticity (þar sem við á).

Ath. Það gæti tekið nokkra daga að fá endurgreitt.

Tollur:
LYDIA er með tollfrjálsar sendingar til USA, UK og EU
Viðskiptavinir í öðrum löndum gætu þurft að borga toll við afhendingu.